Já, finnst þér ekki! Eftir að Fróði fór að hafa þrætu- og heimtuvit hefur hann suðað um "venjulegt" jólatré. "Það er enginn með svona asnalegt heimasmíðað jólatré, mamma!" Ég hef alltaf sloppið með að segja að við höfum ekki pláss fyrir annað.
Svo fengum við pláss í fyrra - og feðgarnir fóru og keyptu þriggja metra jólatré... Ég þarf ekkert að útskýra þetta frekar... gamla tréð var sett upp í ár og allir ánægðir með það :-)
5 ummæli:
Alltaf jafn glæsilegt

Og vittu til - Hann á eftir að heimta að erfa tréð!
ó mí! Jösses hvað ég er skotin í jólatrénu ykkar! Það er BARA flottast...
Kveðja,
Bára
Já,það er ég alveg viss um og síðan eiga börnin hans eftir að röfla hehe.. svona röfl erfist nefnilega.. svo segir mamma :-)
kv,Stína
Skrifa ummæli